Hringvegurinn í gegnum Borgarnes frá Borgarbraut að brúnni yfir Borgarfjörð verður lokuð í kvöld, sunnudag, milli klukkan níu til sjö í fyrramálið, vegna fræsingar. Sama lokun verður annað kvöld og fram á þriðjudagsmorgun. Hjáleið um Borgarfjarðarbraut er merkt sunnan við brúna.Vegagerðin vekur athygli á að viðgerðir og aðrar vegaframkvæmdir eiga sér nú stað um allt land. Búast má við steinkasti og jafnvel töfum vegna þessa. Hraði er tekinn niður á flestum vinnusvæðum og eru vegfarendur beðnir um sýna aðgát og tillitsemi og halda 50 metrum á milli bíla til að minnka líkur á skemmdum vegna steinkasts.Þá verður brúin yfir Jökulsá á Fjöllum að mestu lokuð alla virka daga frá og með morgundeginum og fram í miðjan september. Bílum verður hleypt yfir nokkrum sinnum á dag. Brúin verður opin um he