Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók mann á skemmtistað í miðbænum sem lamið hafði gesti með stól. Nokkur erill var hjá lögreglunni en annar var handtekinn vegna líkamsárásar á öðrum skemmtistað í miðbænum í nótt. Á Seltjarnarnesi voru húsráðendur kærðir fyrir mikinn hávaða frá partíi í heimahúsi. Lögregla þurfti ítrekað að fara og hafa afskipti af fólkinu og það beðið um að minnka hávaðann. Í umdæmi lögreglustöðvar 4 sem þjónar Árbæ, Grafarholti, Grafarvogi, Norðlingaholti, Mosfellsbæ, Kjalarnesi og Kjósarhreppi veitti lögregla ökumanni eftirför. Hann reyndist undir áhrifum fíkniefna og á hann von á kæru fyrir ýmis umferðarlagabrot eftir eftirförina. Farþegi sem var í bílnum var einnig handtekinn og vistaður í fangaklefa fyrir að hafa veist að lögreglu. Annað samkvæmi endaði með aðkomu