Útlit er fyrir hæga breytilega vindátt í dag eða hafgolu á landinu. Bjart verður með köflum en skýjað og lítilsháttar væta um suðaustanvert landið. Hiti verður á bilinu 10 til 17 stig yfir daginn og verður hlýjast á Vesturlandi. Á morgun verður svo austan vindátt á bilinu 5 til 10 metrar á sekúndu. Það blæs aðeins meira við suðurströndina þar sem vindur verður á bilinu 10 til 15 metrar á sekúndu. Á Norðurlandi verður léttskýjað og sólríkt en skýjað á sunnanverðu landinu. Hiti á bilinu 12 til 20 stig, hlýjast á Norðurlandi. Á þriðjudag dregur úr vindi og verður bjart veður nokkuð víða. Skýjað á Austfjörðum og Suðausturlandi. Ekki er ólíklegt að einhverjir á Norðurlandi fari í sund yfir helgina enda veður með rólegasta móti.RÚV / Kristófer Óli Birkisson