Aðdáendur vottuðu Bonnie Tyler virðingu sína

Þúsundir aðdáenda velsku söngkonunnar Bonnie Tyler komu saman í Mumbles í suður Wales í gær til að votta söngkonunni virðingu sína þegar kista hennar var flutt í líkvagni áleiðis til Swansea þar sem hún verður jörðuð á mánudag.Kistan var umvafin velska fánanum og til hliðar var innrömmuð mynd af söngkonunni. Aðdáendurnir klöppuðu þegar eitt hennar þekktasta lag var spilað, Total Eclipse of the Heart.Bonnie Tyler lést á spítala í Portúgal í síðasta mánuði, 75 ára að aldri. Skírnarnafn hennar var Gaynor Hopkins og hún ólst upp í námuþorpi norðvestur af Swansea.Hún var sannkölluð drottning 9. áratugarins og þekkt fyrir sína einstöku rámu rödd. Eftir hana liggja fjölmargir þekktir slagarar, líkt og It´s a heartache, Holding out for a Hero að ógleymdu Total Eclipse of the Heart.
Aðdáendur vottuðu Bonnie Tyler virðingu sína

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd