Konur geta nú erft krúnuna í furstadæminu Liechtenstein eftir lagabreytingu sem tilkynnt var um á þjóðhátíðardegi landsins í gær. Erfðaprinsinn Alois greindi frá því að lögum um erfðaröð verði breytt innan tíðar og sagði að tveir þriðju furstafjölskyldunnar hefðu samþykkt þessa breytingu. Frumburðurinn erfir krúnuna, óháð kyni.Furstinn Hans-Adam II er þjóðhöfðingi landsins. Erfðaprinsinn Alois, elsti sonur hans er 58 ára og tilvonandi fursti. Hann heur gegnt flestum opinberum skyldum síðustu tvo áratugi.Næstur í erfðaröðinni er Joseph Wenzel prins, sem er elstur fjögurra barna Alois og er 31 árs gamall. Tíminn mun svo leiða í ljós hvort hann eignist fursta eða fyrstu furstynju af Liecthenstein. KONUR FENGU KOSNINGARÉTT ÁRIÐ 1984 Um 44.000 búa í Liechtenstein sem liggur á milli Sviss og