Yfirvöld í Marokkó handtóku 294 í gær sem ætluðu að fara frá Marokkó yfir til spænsku hólmlendunnar Ceuta. Marokkóski fjölmiðillinn Le360 greinir frá.Fólkið sem var handtekið er marokkóskir ríkisborgarar og ríkisborgarar frá löndum sunnan Sahara. Yfirvöld í Marokkó og í Ceuta hafa aukið öryggisgæslu á landamærunum vegna orðróms um að hópur fólks ætli að fara yfir landamærin um helgina.Fyrir tveimur vikum komust um 72.000 yfir til Ceuta yfir nokkurra daga tímabil. Miklum meirihluta þeirra hefur verið vísað aftur til Marokkó.Yfirvöldum ber ekki saman um hversu margir fórust við það að reyna að komast til Ceuta. Marokkósk yfirvöld segja að ellefu hafi farist en spænsk yfirvöld segja að minnsta kosti 80 hafa farist.Marokkósk mannréttindasamtök áætla að að minnsta kosti 141 hafi farist.