Samkvæmt nýjum fánalögum er kvöldið í kvöld síðasta kvöldið sem flagga má íslenska fánanum allan sólarhringinn. Frá og með 16. ágúst gildir því aftur sú regla að fáninn skal tekinn niður við sólsetur og skal fánanum aldrei vera flaggað lengur en til miðnættis.Nýjar fánareglur voru samþykktar á Alþingi 29. apríl og samkvæmt þeim mega landsmenn hafa þjóðfánann uppi allan sólarhringinn frá 1. maí til 15. ágúst.Því tímabili er sum sé lokið í bili og nú fer hver að verða síðastur að taka niður fána sem enn eru blaktandi við stöng í niðdimmri ágústnóttinni.