Komast ekki á afskekkt svæði eftir jarðskjálftann

Tjónið er mikið og þúsundir hafa flúið heimili sín eftir að jarðskjálfti af stærðinni 7,7 reið yfir Indónesíu í gærkvöld.Skjálftinn átti upptök sín undan ströndum Flores-eyju. Óttast er að margir hafi slasast. Björgunarlið hefur ekki enn komist á afskekkt svæði sem talið er að hafi orðið illa úti.Flóðbylgjuviðvörun var gefin út en var afturkölluð þremur klukkustundum síðar. Fjöldi eftirskjálfta hefur orðið, sá stærsti 6,1 að stærð.Sjúkrahús voru rýmd og sjúklingum komið fyrir utandyra af ótta við frekari skjálfta.
Komast ekki á afskekkt svæði eftir jarðskjálftann

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd