„Ég held að allir faktorar séu betri núna en þeir voru síðast“

Sundkappinn Sigurgeir Svanbergsson hefur aðra atrennu að því að synda niður Lagarfljótið endilangt á miðnætti. Hann segir aðstæður margfalt betri nú en þær voru í júní þegar hann þurfti að láta staðar numið vegna ofkælingar.„Ég held að allir faktorar séu betri núna en þeir voru síðast,“ segir hann.Sigurgeir reyndi að synda fljótið endilangt í júní en nam staðar eftir 15 kílómetra. Þá var vatnið um 2,7 gráður en er nú talsvert hlýrra, eða um 8–11 gráður. „Við erum að tala um alveg margfalt betri aðstæður.“Sigurgeir hefur sundið þar sem hann nam staðar síðast. Leiðin er 40 kílómetra löng en þrekraunin er gerð til að styðja við starf Píeta-samtakanna.Hann kveðst betur undirbúinn nú en þá. „Ég var alls ekki nógu hvíldur, ég var ekki búinn að borða nógu mikið og var ekki með hausinn á réttum st
„Ég held að allir faktorar séu betri núna en þeir voru síðast“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd