Beitti konu sína heimilisofbeldi nóttina eftir að hann hlaut árs dóm

Landsréttur úrskurðaði karlmann í síðustu viku í áframhaldandi gæsluvarðhald til 27. ágúst vegna heimilisofbeldis sem hann er talinn hafa beitt sambýliskonu sína. Lögreglustjórinn á Vesturlandi var þeirrar skoðunar að gæsluvarðhaldið væri nauðsynlegt til að verja konuna frá ofbeldismanni sínum.Konan greindi frá því að sambýlismaður hennar hefði 7. júlí ráðist að henni eftir að hún hafði læst sig inni í herbergi í íbúð þeirra. Maðurinn hafi þá sparkað hurðinni upp og tekið hana hálstaki. Hún sagði lögreglu að hún hefði óttast um líf sitt.Læknir lýsti áverkum hennar sem grafalvarlegum.Meint brot áttu sér stað nóttina eftir að maðurinn var dæmdur í 12 mánaða fangelsi í Héraðsdómi Vesturlands. Hann var meðal annars sakfelldur fyrir að hafa tekið konu sína ítrekuðu hálstaki og slegið hana í höf
Beitti konu sína heimilisofbeldi nóttina eftir að hann hlaut árs dóm

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd