Andalúsíuhátíðin Feria de Agosto er hafin í Málaga á Suður-Spáni, tíu daga löng hátíðarhöld þegar íbúar Málaga og spænska sjálfsstjórnarhéraðsins Andalúsíu minnast þess þegar kaþólsku konungshjónin Ísabella I frá Kastilíu og Ferdínand II frá Aragóníu sigruðu síðasta virki Mára árið 1487.