Fimm særðir eftir skotárás í ríkisháskóla Virginíu

Fimm eru særðir, þar af einn lífhættulega, eftir skotárás í ríkisháskóla Virginíu-ríkis (e. Virginia State University) í Bandaríkjunum. Lögreglumenn brugðust við tilkynningu um árásina snemma morguns.Á vettvangi fundu lögreglumenn fimm með áverka. Fjórir voru með áverka sem ekki voru taldir lífshættulegir en einn er alvarlega særður. Allir voru fluttir á spítala.Ójóst er hvort árásarmaðurinn eða mögulegir árásarmenn hafi verið handteknir eða ekki.Háskólanum var lokað í kjölfar árásarinnar en hefur verið opnaður á ný. Enn er þó mikill fjöldi lögreglumanna á vettvangi.Um 5.700 nemendur eru í háskólanum sem staðsettur er um 20 mílur frá borginni Richmond sem er höfuðborg Virginíu-ríkis. Háskólinn var sá fyrsti í Bandaríkjunum sem hlaut fullan ríkisstuðning til fjögurra ára náms fyrir svarta B
Fimm særðir eftir skotárás í ríkisháskóla Virginíu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd