Ísraelar gera loftárásir í Líbanon

Ellefu voru drepnir, þar af þrjú börn, og þrír særðust í loftárás Ísraela á suður Líbanon. Líbanska fréttastofan NNA segir að árásin hafi verið gerð á útjaðri þorpsins Ansar. Önnur árás var gerð í bænum Deir al-Zahrani.Þetta er mesta mannfall í Líbanon síðan Ísraelar og Hezbollah samþykktu vopnahlé í júní.Ísraelsher segir skotmark árásarinnar hafa verið innviðir Hezbollah-samtakanna. Hún hefði verið gagnárás vegna árásar á ísraelska hermenn. Yfirvöld í Líbanon segja loftárás Ísraela hins vegar hafa beinst að híbýlum fjölskyldna á flótta.Viðvarandi átök Ísraels og Hezbollah tengjast stríði Bandaríkjanna og Írans. Hezbollah-samtökin, sem eru líbönsk en tengjast Íran, skutu eldflaugum á Ísrael eftir að æðstiklerkur Írans var drepinn í mars. Ísrael brást við með því að ráðast inn í Líbanon.
Ísraelar gera loftárásir í Líbanon

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd