Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á fjórða tímanum vegna manns sem féll við Hestfjall í Borgarfirði.Þyrlan er nú á staðnum og til stendur að hífa manninn um borð. Hann verður þá fluttur til Reykjavíkur.Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, staðfestir þetta við fréttastofu. Upplýsingar um líðan mannsins eru ekki fyrir hendi.RÚV / Kristófer Óli Birkisson