Segir varanlegar undanþágur í boði: „Það heitir sérlausnir“

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir að varanlegar undanþágur séu í boði þegar ríki sækja um aðild að Evrópusambandinu.„Þær eru í boði, aðrar þjóðir hafa fengið slíkt. Það heitir sérlausnir en ekki varanlegar undanþágur. Aðrar þjóðir hafa fengið þær á þeim sviðum sem varða þær mestu. Það sem stjórnvöld leggja grundvallaráherslu á,“ sagði hún í Vikulokunum á Rás 1 í dag.Hanna Katrín segir að ríkisstjórnin hafi lýst því yfir að í aðildarviðræðum yrði lögð áhersla á sjávarútvegsmál, byggðamál og landbúnað. „Orkumálin eru líka gríðarlega mikilvæg. [...] Við höfum sagt þetta ítrekað. Þetta eru stóru málin.“ TELUR RÁÐHERRA OFMETA STÖÐUNA „Ég held að Hanna Katrín og Þorgerður Katrín [Gunnarsdóttir utanríkisráðherra] ofmeti svolítið mikið hvaða Evrópusamband við erum að tala um,“
Segir varanlegar undanþágur í boði: „Það heitir sérlausnir“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd