Lögnin komin á land en ekki ljóst hvort hún beri vatn

Nýja vatnslögnin kom í land í Vestmannaeyjum í nótt. Það tekur þó nokkurn tíma að kanna hvort hún geti sinnt hlutverki sínu eftir að skemmdir urðu á henni síðustu helgi.„Við búumst við því að það taki svona tvær vikur að klára það sem þarf að gera til þess að hægt sé að prófa það og þrýstiprófa hana, sjá hvort hún geti flutt eitthvert vatn, segir Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.Lagningaskipið Subsea 7 yfirgaf Vestmannaeyjar um hálf fjögur í nótt og sáu þá aðrir verktakar um að koma henni í land.Fyrirtækið Subsea 7 hefur umsjón með verkefninu og hófst það 4. ágúst. Lögnin varð fyrir skemmdum síðustu helgi á meðan unnið var að útlagningu hennar.Vestmannaeyjabær ákvað í samráði við fyrirtækið að klára að leggja vatnslögnina svo hægt verði að nýta hana að einhverju marki. Ekki
Lögnin komin á land en ekki ljóst hvort hún beri vatn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd