Inga Sæland barna- og menntamálaráðherra kynnti fyrir nokkrum dögum að einkunnir í grunnskólum skuli gefnar í tölustöfum í stað bókstafa til að námsmat verði skýrara og samræmdara.Þessi áform taka gildi við lok 10. bekkjar næsta vor og kennarar gagnrýna að hafa ekki verið með í ráðum. VIÐ KÖLLUM ÞAÐ NÚ EKKI SAMRÁÐ... „Við köllum það nú ekki samráð þó við höfum fengið tilkynningar og upplýsingar um að ákveðin áform væru í bígerð,“ segir Mjöll Matthíasdóttir formaður Félags grunnskólakennara.Hún segir að þessi breyting hafi ýmis áhrif á skólastarf og skipulag þess, kennarar eru mættir til starfa og kennsla hefst eftir rúma viku. EKKI EINFÖLD AÐGERÐ „Menn þurfa t.d. að bregðast hratt við í skólunum. Skólastjórnendum er t.d. uppálagt að setja upp innleiðingarteymi í hverjum einasta skóla