Langar raðir mynduðust á Keflavíkurflugvelli í morgun, líkt og síðustu daga. Rétt eins og á fimmtudaginn ná raðirnar út fyrir flugstöðina. Gera má ráð fyrir að hámarksbiðtími sé um 45 mínútur.Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, segir ástæðuna þá sömu og síðustu daga, að mikill fjöldi ferðamanna hafi verið hér á landi í kringum sólmyrkvann 12. ágúst en þeir séu á leið heim til sín. „Við erum með fulla mönnun á öryggisleitarlínum og þær eru allar opnar,“ segir hann.„Við erum viðbúin því að þetta geti haldið áfram eitthvað í dag og á morgun. Dreifingin á flugum er meiri á morgun en var í dag,“ segir Guðjón. „Í morgun eins og í gær þá rennur þetta skilmerkilega í gegn. Það er ekkert stopp á röðunum og þetta gengur snurðulaust fyrir sig.“ SUMIR DAGAR ÞYNGRI EN AÐRIR Guðjón segir að þ