Donald Trump Bandaríkjaforseti gerir lítið úr áhyggjum aðstandenda hermanna sem eru um borð í bandaríska flugmóðurskipinu Abraham Lincoln í viðtali við fjölmiðla í Washington í gær. Svo virðist sem birgðavandamál fyrir skipið hafi komið upp á fyrstu dögum stríðsins í Mið-Austurlöndum.Trump sagði hermennina ekki vera búna að vera útsenda nærri nógu lengi. Hann staðfesti þó að til stæði að skipt yrði um flugmóðurskip og herlið fljótlega. Sjóherinn hefur greint frá því að flugmóðurskipið George Washington sé á leið til að taka við af Abraham Lincoln.Erlendir miðlar greindu frá því fyrr í vikunni að aðstandendur þeirra fimm þúsund hermanna um borð í flugmóðurskipinu Abraham Lincoln hefðu áhyggjur af andlegri heilsu þeirra og aðstæðum um borð. Til stóð að úthald þeirra yrði sex mánuðir en það h