Þrjátíu og átta, hið minnsta, eru látin eftir jarðskjálfta í Indónesíu í gærkvöld.Tvö þúsund hafa yfirgefið heimili sín.Skjálftinn, sem var af stærðinni 7,7, átti upptök sín undan ströndum Flores-eyju.Byggingar á eyjunni, og á eyjum í kring, urðu fyrir skemmdum og óttast er að margir hafi slasast. FLÓÐBYLGJUVIÐVÖRUN OG FJÖLDI EFTIRSKJÁLFTA Flóðbylgjuviðvörun var gefin út en var afturkölluð þremur klukkustundum síðar. Fjöldi eftirskjálfta hefur orðið, sá stærsti 6,1 að stærð.Flores-eyja liggur austan við Bali og vestan við Tímor og er í eyjaklasanum milli Balihafs og Tímorhafs.Jarðskjálftar eru algengir við Indónesíu og nágrannaríki.Landið er staðsett í hinum svokallaða Kyrrahafseldhring sem er jarðskjálftabelti sem nær frá Nýja-Sjálandi, í gegnum Suðaustur-Asíu og Japan og meðfram vestu