Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra telur það óskynsamlegt að bændur leggist alfarið gegn því að aðildarviðræður við Evrópusambandið hefjist að nýju. Hún sagðist engu að síður fagna þeirri umræðu sem fór fram á aukabúnaðarþingi bænda í gær.„Mér skilst að það hafi verið mjög upplýsandi og fræðandi,“ segir hún en kvaðst ekki hafa getað verið viðstödd þar sem hún var á ríkisstjórnarfundi.Atvinnuvegaráðherra telur það ekki skynsamlegt að bændur leggist gegn því að aðildarviðræður við Evrópusambandið hefjist að nýju. Mikilvægt sé að hagsmunasamtök komi að mögulegum aðildarviðræðum.„En ég hafna því hins vegar að það sé Evrópusambandsaðild sem sé eina ógnin sem steðji að íslenskum bændum í dag,“ segir Hanna Katrín sem telur stöðuna krefjandi. Bændum hafi fækkað undanfarin ár og áratugi o