Stríðsátökin sem settu svip sinn á líf Afgana í áratugi hafa að miklu leyti minnkað.En fyrir konur hefur óttinn ekki horfið heldur tekið á sig aðra mynd.Í dag eru fimm ár síðan Talibanar komust aftur til valda í Afganistan. ÞÚSUNDIR REYNDU AÐ FLÝJA LANDIÐ Talíbanar náðu völdum 1996 en með innrás Bandaríkjahers, og bandamanna þeirra, 2001 voru þeir hraktir frá völdum.Árið 2021 komust talibanar þó aftur til valda með neikvæðum afleiðingum á stöðu og réttindi kvenna.Þúsundir Afgana reyndu þá að flýja landið, örvænting og öngþveiti skapaðist á flugvellinum í höfuðborginni Kabúl.Fólk vildi komast burt því það óttaðist um eigin framtíð og framtíð fjölskyldna sinna undir stjórn talíbana.Og óttinn reyndist á rökum reistur, eftir því sem kemur fram í nýrri skýrslu UN Women um stöðu kvenna í Afga