Ökumenn í spyrnu á 190 kílómetra hraða

Tilkynnt var í nótt um ökumenn í spyrnu á um 190 kílómetra hraða í umdæmi lögreglustöðvar 1 sem sinnir Austurbæ, Miðbæ, Vesturbæ og Seltjarnarnesi. Lögregla fór á vettvang og ræddi við ökumenn. Þó nokkur erill var hjá lögreglu í nótt, aðallega í og við miðbæinn. Tilkynnt var um mann með rafbyssu í fórum sínum í miðbæ Reykjavíkur. Lögregla leitaði að manninum en fann hvorki hann né rafbyssuna. Tilkynnt var einnig um mann sem barði í bifreiðar og ónáðaði fólk. Lögregla fór á vettvang og var maðurinn handtekinn fyrir ölvun og óspektir á almannafæri. Hann var látinn gista í fangaklefa þar sem hann var ekki hæfur til að vera úti á meðal almennings vegna ástands síns. Brotist var þá inn í hljóðfæraverslun og fór lögregla á vettvang til að rannsaka málið en gerendur voru farnir af vettvangi þegar
Ökumenn í spyrnu á 190 kílómetra hraða

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd