Í júlí var sagt frá því að auðmaðurinn Björgólfur Thor Björgólfsson hefði flutt lögheimili sitt frá Bretlandi til borgarinnar Mílanó á Norður-Ítalíu. Í viðtali við fréttaveituna Bloomberg sagði Björgólfur Thor frá því að skattalegar ástæður væru fyrir þessum flutningi. Ástæðan er sú að Breski verkamannaflokkurinn hefur breytt skattkerfinu í landinu.Nú er það þannig að alþjóðlegir fjárfestar eins og Björgólfur Thor þurfa að borga skatta þar af þeim tekjum sem verða til utan Bretlands. Þetta einkenni breska skattkerfisins á rætur sínar að rekja allt aftur til aldamótanna 1800. Þetta kerfi var kallað non-dom og fól í sér að alþjóðlegir fjárfestar voru með heimilisfesti í Bretlandi en bjuggu samt í öðrum löndum og nutu þessa skattahagræðis.Fjallað er um viðtalið við Björgólf Thor í fréttaskýri