1.100 Sómalar missa vernd í Bandaríkjunum

Alríkisdómari í Bandaríkjunum hefur samþykkt að aflétta sérstakri vernd fyrir um ellefu hundruð Sómala í Bandaríkjunum. Bandaríkjastjórn fór fram á að vernd yfir þeim yrði aflétt. Þar með er hægt að vísa fólkinu úr landi.Norska ríkisútvarpið greinir frá því að Sómalar hafi notið verndar í Bandaríkjunum síðan árið 1991 vegna borgarastyrjaldar í Sómalíu.Bandarísk stjórnvöld halda því nú fram að aðstæður í landinu séu orðnar nógu góðar til að hægt sé að senda þá til baka.
1.100 Sómalar missa vernd í Bandaríkjunum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd