Donald Trump Bandaríkjaforseti segist ætla að lýsa því yfir innan tíðar að Hormússund sé bandarískt yfirráðasvæði. Trump lét þessi ummæli falla á fundi í lögregluskóla á Long Island í New York í gær.Hann sagði að þegar Bandaríkin verði búin að sigra Írana muni hann fljótlega lýsa því yfir að Hormússund sé yfirráðasvæði Bandaríkjanna. Hann sagði Bandaríkin stjórna sundinu og enginn kæmist þar í gegn nema með vilja Bandaríkjanna.Ekki er ljóst hvort Bandaríkjaforseta er alvara með þessum ummælum.Aðstoðarutanríkisráðherra Íran, Kazem Gharibabadi, sagði í dag í færslu á X að Hormússund væri, sé og verði áfram íranskt. Hann sagði einnig að sundið yrði opnað og lokað eingöngu samkvæmt tilskipun Írana.Alger kyrrstaða er í samningaviðræðum milli Bandaríkjanna og Íran um Hormússund. Báðar þjóðir rey