130 hermenn voru í Hveragerði á stríðsárunum

Ástæðan er þó ljós því verið var að afhjúpa söguskilti um veru 130 kanadískra hermanna árið 1940 í bæjarfélaginu, sem höfðu það hlutverk að sjá um varnir Suðurlands í síðari heimsstyrjöldinni.„Fjölmargir bæjarbúar mættu við afhjúpun söguskiltisins síðdegis í gær, auk sex hermanna frá kanadísku hersveitinni. Eftir nokkur ávörp var söguskiltið afhjúpað við Lystigarðinn í tilefni af 80 ára afmæli bæjarfélagsins. Fróðlegar upplýsingar eru á skiltinu, auk ljósmynda.„Þeir komu hingað til lands í júlí 1940 og þeim var falið að sjá um varnir Suðurlands og settu upp höfuðstöðvar hér. Þeir voru hér í þrjá til fjóra mánuði og þetta var fyrsta verkefni þeirra í síðari heimsstyrjöld,” segir Njörður Sigurðsson, sagnfræðingur og bæjarfulltrúi í Hveragerði.Var þetta fjölmennur hópur hermanna á sínum tíma?
130 hermenn voru í Hveragerði á stríðsárunum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd