„Þjóðin er klofin í tvennt og afstaða fólks er að harðna. Það er það sem má sjá út úr þessum tölum,“ segir Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, um nýjan þjóðarpúls Gallup.Þar var mælt hvernig fólk hyggst greiða atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslunni um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið í lok mánaðar.Sögðust 51,5% þeirra sem tóku afstöðu að þeir myndu velja já en 48,5% nei. Það er þó ekki tölfræðilega marktækur munur. Fleiri eru vissari í sinni sök en í síðasta þjóðarpúlsi sem var gerður í júní.„Staðan er hnífjöfn þannig að þetta er eins spennandi kosning og hægt er að hugsa sér,“ segir Eiríkur.Það sem Eiríkur telur að muni að endingu skilja á milli fylkinganna tveggja er mætingin. „Keppni fylkinganna tveggja gengur út á að ná sínu fólki á kjörstað.“Hann bendir á að í þjóða