Kjörsókn utan kjörfundar á höfuðborgarsvæðinu er mun meiri en fyrir síðustu sveitar- og alþingiskosningar en er álíka og í forsetakosningunum.Í Hlíðasmára er stöðugur straumur til Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu. Fjölga á kjörstöðum. Frá og með mánudeginum verður hægt að kjósa í Kringlunni frá hádegi og á afgreiðslutíma Kringlunnar.Erlendis má greiða atkvæði í sendiráðum, hjá fastanefndum hjá alþjóðastofnunum og hjá ræðismönnum eftir samkomulagi. Einfalt er að kjósa þar sem Íslendingar eru flestir eins og á Norðurlöndunum. Vestanhafs má ætla að hlutfallslega flestir séu búsettir á austurströndinni og þá helst í kringum New York-borg. Í ríkjunum í kring eru ekki ræðismenn.Rétt er að minna á að kjósandi ber ábyrgð og eftir atvikum kostnað af því að atkvæði hans berist á áfangastað.