Mikill meirihluti ákveðinn í afstöðu sinni

Stór meirihluti svarenda í nýjum þjóðarpúlsi Gallup er ákveðinn í því hvert atkvæði þeirra ratar í þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðildarviðræður við ESB í lok mánaðar.Þar af eru 42% sem segjast örugglega ætla að kjósa já og 41% sem segjast örugglega ætla að kjósa nei. Að auki eru 9% sem segjast líklega kjósa já og 7% sem segjast líklega kjósa nei. Í heildina eru örlítið fleiri sem segjast ætla að kjósa já en munurinn á milli fylkinga er ekki marktækur.Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur segir það ekki koma á óvart að svo margir séu búnir að ákveða hvað þeir hyggist kjósa. Það sé stutt í atkvæðagreiðsluna og mikil umræða búin að vera síðustu mánuði.Hún segir þjóðarpúlsinn ekki gefa neina vísbendingu um niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar.„Hvert atkvæði mun skipta máli. Þetta er hn
Mikill meirihluti ákveðinn í afstöðu sinni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd