Héraðssaksóknari hæfur til að rannsaka Jón Óttar

Landsréttur telur Ólaf Þór Hauksson héraðssaksóknara og starfsmenn embættisins hæfa til að rannsaka meint mútubrot og peningaþvætti Jóns Óttars Ólafssonar, fyrrverandi lögreglumanns, meðan hann starfaði fyrir Samherja.Landsréttur staðfesti 31. júlí úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá því fyrr í sama mánuði. Þar var kröfu Jóns Óttars um að meðferð héraðssaksóknara á þætti hans í svokölluðu Samherjamáli yrði felld niður vegna meints vanhæfis embættisins hafnað.Níu fyrrverandi og núverandi stjórnendur eða starfsmenn Samherja eru með réttarstöðu sakbornings. Einn þeirra er Jón Óttar. Rannsókninni er lokið en héraðssaksóknari hefur ekki gefið út ákæru. SAMHERJAMÁLIÐ OG MEINT BROT HJÁ SÉRSTÖKUM SAKSÓKNARA ÓTENGD Jón Óttar starfaði hjá embætti sérstaks saksóknara árin 2009–2011 og sætti rannsók
Héraðssaksóknari hæfur til að rannsaka Jón Óttar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd