Luigi Mangione játar að hafa skotið forstjóra United Healthcare

Luigi Mangione viðurkenndi í dag að hafa skotið Brian Thompson, forstjóra eins stærsta sjúkratryggingafyrirtækis Bandaríkjanna, til bana í New York árið 2024.Saksóknarar segja að Mangione hafi skipulagt morðið vegna andstöðu sinnar við bandaríska heilbrigðiskerfið og til að koma pólitískum skilaboðum á framfæri.„Ég skaut herra Thompson í Manhattan og hann lést,“ sagði Mangione þegar hann las yfirlýsingu sína í dag. Hann bætti því við að hann hefði gert sér grein fyrir því að gjörðir hans væru ólöglegar.Ekkja Thompsons og aðrir aðstandendur voru í réttarsalnum þegar Mangione lýsti árásinni.Hann skaut Thompson í bakið fyrir utan hótel í Manhattan þar sem forstjórinn hugðist sækja ráðstefnu. Fyrir dómi kom fram að Mangione hefði þóst vera fjárfestir til þess að nálgast upplýsingar um ráðstefn
Luigi Mangione játar að hafa skotið forstjóra United Healthcare

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd