Vandræðaúlfurinn skotinn í Danmörku

Úlfur, sem hefur gert íbúum á Vestur-Jótlandi í Danmörku lífið leitt frá byrjun mánaðar, var skotinn í gærkvöld. Úlfurinn, sem hafði meðal annars sést nærri barnaleiksvæði, í húsagörðum og nærri veitingastað í útjaðri bæjarins Nørre Nebel, var skotinn af tíu metra færi af starfsmanni Umhverfisstofnunar Danmerkur. Hans hafði meðal annars verið leitað með drónum. Úlfsins hafði meðal annars orðið vart við ærslabelg á barnaleiksvæði.Skjámynd DR / Per Sønderby
Vandræðaúlfurinn skotinn í Danmörku

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd