Íbúar Helsinki urðu 700 þúsund í nótt — borgarstjórinn fagnar hástöfum

Íbúar finnsku höfuðborgarinnar Helsinki urðu sjö hundruð þúsund í nótt. Borgaryfirvöld greindu frá áfanganum í fréttatilkynningu snemma í morgun og segja fjöldann byggja á útreikningum upplýsingadeildar borgarinnar.Lehtola-hjónunum fæddist erfingi þegar þrjár mínútur lifðu af þessum föstudegi, sem vegur rúmlega sextán merkur og er rúmir 54 sentímetrar.Borgarstjórinn Daniel Sazonov heimsótti fjölskylduna á fæðingardeildina og færði barninu 700 evra námsstyrk, eða jafnvirði um hundrað þúsund króna. Hann bauð nýja borgarbúann hjartanlega velkominn og óskaði fjölskyldunni allra heilla.Næstum átta af hverjum tíu nýjum íbúum Helsinki flytjast þangað ýmist frá útlöndum eða annars staðar úr Finnlandi, samkvæmt umfjöllun YLE.Sazonov sagði að fjölgunin væri augljóst merki þess hve aðlaðandi borgin e
Íbúar Helsinki urðu 700 þúsund í nótt — borgarstjórinn fagnar hástöfum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd