Nýr þjóðarpúls: Ekki marktækur munur á fylkingum

Ekki er hægt að segja til um hvort fleiri ætli að segja já eða nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni í lok mánaðar samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Þjóðin tekur afstöðu 29. ágúst um hvort Ísland eigi að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný.Í þjóðarpúlsinum sögðust 51,5% þeirra sem tóku afstöðu að þeir myndu velja já en 48,5% nei. Það er ekki tölfræðilega marktækur munur en vikmörkin eru 2,5 prósentustig. Af þeim sem svöruðu könnuninni voru 7% enn óákveðin og 1% vildi ekki svara.Íbúar á höfuðborgarsvæðinu eru líklegri en fólk á landsbyggðinni til að segja já. Þá er stuðningur við framhald aðildarviðræðna meiri meðal háskólamenntaðra.Kjósendur stjórnarflokkanna og Vinstri grænna eru líklegri til að greiða atkvæði með framhaldi aðildarviðræðna en kjósendur stjórnarandstöðuflokkanna ólíkl
Nýr þjóðarpúls: Ekki marktækur munur á fylkingum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd