Ákæruvaldið vill líklega fá skýra afstöðu um hvort sala Santé á einni rauðvínsflösku og rútu af bjór sé ólögleg áður en gripið er til frekari aðgerða. Þetta segir Hafsteinn Dan Kristjánsson, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík.Eigendur Santé, netverslunar með áfengi, hafa verið ákærðir fyrir brot á áfengislögum og peningaþvætti með því að hafa borið ábyrgð á smásölu áfengis með sölu á einni rauðvínsflösku og rútu af bjór í ágúst í fyrra.Hafsteinn tekur fram að ákæruvaldið eitt viti hvað búi að baki aðferðinni. Þó megi geta í eyðurnar. „Það er ekki ósennilegt að þau séu að freista þess að fá fram afstöðu dómstóla til hvað nákvæmlega brýtur í bága við lög og að þarna sé verið að láta reyna á ólíkar tegundir tilvika þar sem geta komið til skoðunar mismunandi álitaefni.“Svipaðri aðfe