Fólksbíl var ekið aftan á traktor á Fljótsheiði í Suður-Þingeyjasýslu á fjórða tímanum. Vegurinn er lokaður og lögregla og sjúkrabíll meta stöðuna á vettvangi.Þetta staðfestir varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra.Ekki liggur fyrir að svo stöddu hversu alvarlegt slysið er, hversu margir farþegar voru í ökutækjunum og hvort þeir séu slasaðir.