Nýtt hjúkrunarheimili vígt á Höfn

Nýtt hjúkrunarheimili var vígt við Skjólgarð á Höfn í Hornafirði í dag. Þegar öllum framkvæmdum lýkur verða þar 30 hjúkrunarrými, þremur fleiri en nú, og þrjú sjúkrarými, auk aðstöðu fyrir sjúkraþjálfun og dagdvöl. Tekin var ákvörðun um að stækka hjúkrunarheimilið þannig að allir geti verið í sérherbergi.„Nýbyggingin sem nú hefur verið tekin í notkun er fyrri áfangi heildarverkefnisins sem miðar að því að stórbæta aðstöðu fyrir íbúa og starfsfólk. Verkefnið felur í sér bæði viðbyggingu við Skjólgarð og umfangsmiklar endurbætur á eldra húsnæði heimilisins. Góð tengsl eru á milli einstakra hluta heimilisins og horft hefur verið til þess að nýta staðsetninguna og útsýnið sem best,“ segir í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu og félags- og húsnæðismálaráðuneytinu.„Þetta eru langþráð og miki
Nýtt hjúkrunarheimili vígt á Höfn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd