Skordýr í frosnum hindberjum

Búið er að innkalla eina framleiðslulotu af þessum hindberjum.KrónanMatvælastofnun varar neytendur við einni lotu af frosnum hindberjum frá Grön Balance vegna skordýra sem mögulega geta leynst í pakkningunum. Krónan, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs og Mosfellsbæjar, hefur innkallað vöruna af markaði.Matvælastofnun vekur athygli á þessu á heimasíðu sinni.Best fyrir dagsetning á pakkningum hindberjanna er 19.03.2028.Fólk sem hefur keypt þessa framleiðslulotu getur skilað hindberjunum og fengið endurgreitt.
Skordýr í frosnum hindberjum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd