8.000 farþegar fyrir hádegi

Dagurinn í dag og gærdagurinn voru með annasömustu dögum ársins á Keflavíkurflugvelli, en um fjórðungi fleiri farþegar fóru um flugstöðina fyrir hádegi þessa daga en að meðaltali. Isavia bætti við starfsfólki til að anna álaginu.„Það eru á bilinu 7-8.000 farþegar sem fara í gegnum öryggisleit núna á milli klukkan 7 og 12 á hádegi í dag og svipað í gær,“ sagði Guðjón Helgason upplýsingafulltrúi Isavia í Leifsstöð í morgun.Það eru um 2.000 fleiri farþegar en venjulega á fimmtudögum og föstudögum á sumrin. Þetta lá fyrir með fyrirvara og bætt var við starfsfólki. > „Þannig að það má segja að þetta sé einn af annasömustu dögum okkar á þessu ári og núna í sumar. Röðin sem myndaðist í gær og að hluta til í morgun er meira en við höfum séð.“ FLEIRI FARÞEGAR - LENGRI BIÐ Fleiri farþegum fylgir
8.000 farþegar fyrir hádegi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd