Mannanafnanefnd hefur á síðustu vikum samþykkt tólf ný eiginnöfn sem færð verða á mannanafnaskrá.Í síðasta mánuði var kvennafnið Mila samþykkt og karlmannsnafnið Araþon.Níu nöfn voru samþykkt á fundi nefndarinnar þann 30. júlí. Af þeim voru fimm karlmannsnöfn; Hugríkur, Örri, Jean, Lerkir, og Húrinn.Þrjú kvennöfn voru samþykkt; Rúa, Drangey og Aelía. Þar að auki var eiginnafnið Blóm samþykkt. Það verður fært á mannanafnaskrá yfir kynhlutlaus nöfn.Á miðvikudag samþykkti nefndin svo karlkynsnafnið Herner.