Lögregla fann þrjú málverk eftir gömlu meistarana sem stolið var í mars

Ítalskur lögreglubíll. Mynd úr safni.Pixabay / CC0Ítölsk lögregluyfirvöld hafa fundið að nýju þrjú málverk eftir Pierre-Auguste Renoir, Paul Cézanne og Henri Matisse sem stolið var í mars úr Magnani Rocca-einkasafninu nærri borginni Parma.Verkin fundust eftir að húsleitir voru gerðar á nokkrum stöðum að skipan ríkissaksóknara. Verkin þrjú eru Fiskur eftir Renoir, Kyrralífsmynd með kirsuberjum eftir Cézanne og Ambátt á stéttinni eftir Matisse.Þau eru samtals talin yfir níu milljóna evra virði, eða jafngildi næstum 1,3 milljarða króna. Svo virðist sem þjófnaðurinn hafi verið þaulskipulagður. Rannsókn stendur enn yfir en lögregla telur skipulögð glæpasamtök hafa staðið að ráninu.
Lögregla fann þrjú málverk eftir gömlu meistarana sem stolið var í mars

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd