Íslenskt samfélag öruggara eftir brottvísun Sterkaj

Dómsmálaráðherra segir að Angjelin Sterkaj hafi ekki fengið neinn afslátt á refsingu sinni. Ævilangt endurkomubann á Schengen-svæðið tryggi að hann komi ekki aftur til landsins. Sterkaj, sem er frá Albaníu, var dæmdur í sextán ára fangelsi fyrir að myrða samlanda sinn Armando Beqirai í Rauðagerði árið 2021. Morðið vakti mikinn óhug enda hrein aftaka þar sem Sterkaj skaut Beqirai níu sinnum. Vísir greindi frá því í gær að Sterkaj hefði fengi reynslulausn og væri kominn aftur til Albaníu þar sem hann er frjáls ferða sinna. Það var gert á grundvelli laga sem Alþingi samþykkti í vetur og kveða á um að hægt sé að veita útlenskum föngum, sem engin tengsl hafa við landið, reynslulausn þegar þriðjungur refsitíma er liðinn. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, lagði frumvarpið fram.
Íslenskt samfélag öruggara eftir brottvísun Sterkaj

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd