Frá og með 16. ágúst verða bakvaktir dýralækna á svæðinu sem nær yfir Sveitarfélagið Hornafjörð, Djúpavog og svæðið suður af honum ómannaðar.„Matvælastofnun harmar þessa stöðu og vill upplýsa dýraeigendur á svæðinu tímanlega svo þeir geti búið sig undir skerta þjónustu,“ segir í tilkynningu á vef Matvælastofnunar.Þar segir að þetta megi meðal annars rekja til þess að enginn dýralæknir sé með þjónustusamning við MAST á svæðinu. Engin umsókn hefur borist þótt samningurinn hafi verið laus frá því í mars. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur ekki tekist að manna bakvaktir með öðrum hætti. EKKI HÆGT AÐ GANGA AÐ DÝRALÆKNI VÍSUM „Eftir 15. ágúst geta dýraeigendur á svæðinu ekki gengið að því vísu að dýralæknir sé á vakt innan svæðisins, hvorki á dagvinnutíma né á kvöldin, nóttunni eða um helg