Nýja vatnslögnin til Vestmannaeyja skemmdist um borð í skipi fyrirtækisins Subsea 7 þegar verið var að leggja hana. Vestmannaeyjabær vill ekki tjá sig um hvernig hún skemmdist.Fyrirtækið Subsea 7 sér um að leggja vatnslögnina en verkefnið var boðið út innan Evrópska efnahagssvæðisins. Byrjað var að leggja hana 4. ágúst en aðfaranótt sunnudags skemmdist lögnin.Verkefnastjóri Subsea 7 vildi ekki tjá sig um málið.Vestmannaeyjabær tilkynnti í gær að ákveðið hefði verið í samráði við fyrirtækið að klára að leggja vatnslögnina í von um að hægt verði að nýta hana að einhverju marki. Það sé skynsamlegasta skrefið til þess að lágmarka frekari kostnað.Kostnaður vegna skemmdanna fellur ekki á Vestmannaeyjabæ, segir Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. Hún ætlar ekki að tjá sig um forskýr