Fjórar árásir gerðar dag hvern á heilbrigðisstofnanir á stríðshrjáðum svæðum

Ráðist hefur verið á heilbrigðisstarfsfólk, sjúklinga og sjúkrahús á stríðshrjáðum svæðum að meðaltali fjórum sinnum hvern dag síðan í janúar.Alþjóðaheilbrigðisstofnunin greindi frá þessu í morgun og segir flestar atlögur hafa verið gerðar í Úkraínu, Líbanon og á hernumdum svæðum Palestínu. Að minnsta kosti níu hundruð hafa týnt lífi í jafnmörgum árásum og á fimmtánda hundrað til viðbótar hafa hlotið áverka.Áhrifa árásar á heilbrigðisstarfsfólk linnir ekki að henni afstaðinni, segir Altaf Musani, yfirmaður heilbrigðisviðbúnaðar og neyðarviðbragða hjá stofnuninni. Atlögurnar leiði meðal annars til þess að sjúklingar fái síður nauðsynlega heilbrigðisþjónustu og að sjúkrabíll verði ekki tiltækur þegar þörf krefur.
Fjórar árásir gerðar dag hvern á heilbrigðisstofnanir á stríðshrjáðum svæðum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd