Netverslanir með áfengi áætla að allt að 100 þúsund manns kaupi áfengi af öðrum smásölum hér á landi en ÁTVR. Nýleg könnun Gallup sýnir að um þrjátíu prósent aðspurðra segjast hafa keypt áfengi í gegnum vefverslun og tæplega sextíu prósent ef einungis er horft til fólks á aldrinum 20 til 39 ára. Tölur verslananna sjálfra benda til þess að hlutfallið sé enn hærra.