Stjórn VR lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðunni á vinnumarkaði nú þegar ljóst er að forsendur kjarasamninga munu bresta. Þetta kemur fram í tilkynningu stéttarfélagsins.„Stjórn lýsir sig reiðubúna til lausnamiðaðs samtals við stjórnvöld og Samtök atvinnulífsins með það fyrir augum að kjarasamningar geti haldið. En komi ekkert annað til telur stjórn VR uppsögn kjarasamninga óhjákvæmilega.“Í tilkynningunni segir að launafólk hafi undirritað kjarasamninga undir verðbólgu í trausti þess að fyrirtæki héldu aftur af verðhækkunum og að stjórnvöld stilltu gjaldskrárhækkunum í hóf.„Vonir stóðu til að þetta myndi leiða til lækkunar á verðbólgu og vöxtum. Andstætt fyrirheitum sínum hafa bæði ríki og sveitarfélög hækkað gjaldskrár úr hófi fram og stór fyrirtæki sem hafa verðmótandi áhrif hafa aukið v