Stjórn VR lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðunni á vinnumarkaði og segir forsendur gildandi kjarasamninga munu bresta. Stjórnvöld og fyrirtæki hafi vanrækt skyldur sínar samkvæmt samningunum þrátt fyrir ítrekuð ákall VR um aðgerðir undanfarna mánuði.