Hið minnsta tíu liggja á gjörgæslu með áverka eftir skógarelda sem geisað hafa nærri strandborginni Split í Króatíu. Á annan tug er minna meitt. Fólkið slasaðist þegar bætti í vind í morgun svo herti á eldunum sem æddu gegnum skóglendi, yfir vegi og að híbýlum fólks.Skógareldarnir við bæinn Lokva Rogoznica eru einhverjir þeir verstu í sögu Króatíu. Þegar hafa um 2.000 íbúar verið fluttir frá heimilum sínum meðan eldurinn gleypti í sig gróður, hús og farartæki, snemma í morgun. Einnig liðsinnti Rauði krossinn við að koma hundruðum ferðamanna í öruggt skjól.Neyðarhjálparstöðvum hefur verið komið upp í bæjunum Omis, Makarska og strandbænum Split. Heldur hefur dregið úr ofsanum eftir að vatni var steypt úr fjórum kanadískum flugvélum.Tæplega 3.000 slökkviliðsmenn glímdu við eldvegginn í nótt o